I. Krossar (24%) Krossið við réttasta svarið.

 

Við vísindaleg vinnubrögð er fyrsta skrefið að...                           

q   gera tilraunir                                 

q   setja fram tilgátu  

q   gera athugun        

q   hanna rannsókn

 

Ófrum­bjarga teljast líf­verur sem…

q   lifa á kjöti

q   geta ekki hreyft sig úr stað

q   eru ekki sjálfum sér nægar með næringa­r­öflun

q   þurfa að veiða sér til matar

 

Hvert af eftir­töldu á við um allar líf­verur:

q   þær hreyfa sig úr stað

q   þær æxlast

q   þær hafa tauga­kerfi

q   þær vaxa alla ævi

 

Hvað er aldrei til staðar í gerilfrumu?

q   kjarni

q   erfðaefni

q   blaðgræna

q   frumuveggur

 

Frumu­himnan er gerð úr....

q   fitu- og sykur­sam­eindum

q   fitu- og prótein­sam­eindum

q   vatns- og fitu­sam­eindum

q   vatns- og prótein­sam­eindum

 

Hverjar eftirfarandi lífverur tilheyra sama ríki?

q   ildýr og lindýr

q   fluga og ánamaðkur

q   furutré og kartöflumygla

q   veirur og gerlar

 

 

 

Í hverri tvílitna frumu mannsins eru alls:

q   22 litningar

q   23 litningar

q   44 litningar

q   46 litningar

 

Rauður blómlitur garðertna ríkir yfir hvítum. Ef æxlað er sama rauðri arfhreinni plöntu við hvíta verða svipgerðarhlutföll afkvæma:

q   75% rauð og 25% hvít

q   100% bleik

q   50% rauð og 50% hvít

q   100 % rauð

 

Segjum að hvítur og svartur feldlitur kanína sé jafnríkjandi. Hver yrðu líkleg svipgerðarhlutföll afkvæma ef arfhreinni svarti og arfhreinni hvítri kanínu væri æxlað saman?

q   25% svartar, 25% hvítar og 50% gráar

q   100% gráar

q   75% svartar og 25% hvítar

q   75% hvítar og 25% svartar

 

Glúkósi er dæmi um:

q   einsykru

q   tvísykru

q   fásykru

q   fjölsykru

 

Aðalrotverur í vistkerfum jarðar eru?

q   þráðormar og einfrumungar

q   gerlar og sveppir

q   gerlar og einfrumungar

q   sveppir og þráðormar

 

Litningar eru gerðir úr:

q   sykrum og lípíðum

q   DNA og próteinum

q   RNA og sykrum

q   lípíðum og próteinum

Orku­efni líka­mans eru...

q   fitu­leysan­leg vítamín, prótein og fita.

q   fita, sykrur og prótein

q   stein­efni, fita, sykrur og prótein

q   prótein, sykrur og vatn

 

Hvert eftirtalinna efna er í hæsta hlutfalli í mannslíkamanum?

q   vatn

q   sykrur (kolvetni)

q   fita

q   prótein

 

Eftir að fruma í heila manna hefur skipt sér myndast...

q   tvær 2n dótturfrumur

q   tvær 1n dótturfrumur

q   fjórar 2n dótturfrumur

q   fjórar 1n dótturfrumur

 

Plöntutegundin holtasóley Dryas octopétala  telst til ættkvíslarinnar:

q   sóley         

q   octopétala  

q   Dryas       

q   holtasóley

 

Grunneiningar próteina eru?

q   einsykrur

q   amínósýrur

q   kjarnsýrur

q   fjölpeptíð

 

Hvaða dýrum er svo lýst: þrjú fótapör, eitt par fálmara, líkami þrískiptur?                                                                                          f)                                                                                      

q   skriðdýrum                      

q   krabbadýrum                                

q   skordýrum

q   holdýrum

 

Eitt eftirfarandi á við um frumukenninguna?

q   veirur eru frumur

q   allir hlutir eru úr frumum

q   fruman er alltaf heilkjörnungur

q   fruman er minnsta eining lífs

 

Áttfætlur eru dýr sem hafa:

q   þrjú fótapör, þrískiptan líkama, tvö vængjapör.

q   fjögur fótapör, tvískiptan líkama, enga fálmara.

q   þrjú fótapör, tvískiptan líkama, enga fálmara.

q   fjögur fótapör, þrískiptan líkama, enga fálmara.

 

Sameiginlegt einkenni allra frumdýra er að:

q   þau eru einfrumungar

q   eru sníklar

q   eru  dreifkjörnungar

q   stunda rotlífi

 

Kvef er af völdum:

q   veira

q   gerla (baktería)

q   einfrumunga

q   sveppa

 

Eitt af eftirtöldu á ekki við um fugla:

q   þeir hafa jafnheitt blóð

q   þeir hafa innri frjógvun og ytri fósturþroska

q   þeir hafa kalt blóð (misheitt)

q   þeir hafa vatnsþétta og fiðraða húð

                                                                                         

Merktu við röð fyrirbæra frá hinu minnsta til þess stærsta:

q   frumur, vefir, líffæri, líffærakerfi

q   frumur, líffæri, vefir, líffærakerfi

q   vefir, frumur, líffæri, líffærakerfi

q   frumur, líffæri, líffærakerfi, vefir

 


 

II. Rétt / rangt (14%)

 

 

Rétt

Rangt

Þungmálmar geta safnast fyrir í lífverum.

Rök:

 

 

1

1

Maður í AB blóðflokk og kona í A blóðflokk geta ekki átt saman barn sem er í O blóðflokk.

Rök:

 

 

 

1

1

Sveppir eru plöntur.

Rök:

 

 

1

1

Veirur eru lifandi.

Rök:

 

 

 

1

1

Froskar eru háðir vatni.

Rök:

 

 

 

1

1

Mikilvægasta orkuefni líkamans er prótein.

Rök:

 

 

 

1

1

Öll spendýr fæða lifandi afkvæmi.

Rök:

 

 

 

1

1

 

 

 

 

 

III. Samanburður (24%)

a)     Alger- og hálfger myndbreyting skordýra (fullkomin og  ófullkomin):

 

 

 

 

b)     Frumbjarga lífvera og ófrumbjarga lífvera:

 

 

 

 

c)      Dreifkjörnungur og heilkjörnungur:

 

 

 

d)     Fræ og frjókorn:

 

 

 

 

e)     Lífbelti og lífhvolfi:

 

 

 

f)        Gistilífi og sníkjulífi:

 

 

 

 

g)     Dulfrævingur og berfrævingur:

 

 

 

 

h)      Stofn og líffélag:

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

IV. Almennar spurningar (38%)

 

1. (5%)

Ríkjandi genið F veldur freknum. Doddi doppa sem er freknóttur er kvæntur Rúnu sem er ekki freknótt. Saman eiga þau tvö börn freknóttu Freyju og Badda sem er án frekna.

 

a) Skráið arfgerðir allra  fjölskyldumeðlima:

 

Doddi doppa:__________

 

Rúna:____________

Freyja:_______________

Baddi:____________

 

 

b) Doddi og Rúna eiga von á barni. Hvað líkur eru á að barnið verði freknótt? Færið rök fyrir svarinu!

 

 

 

 

 

 

2. (3%)

Nefndu þrjú dæmi um nytsemi sveppa:

 

1._____________________________________________________

 

2._____________________________________________________

 

3.____________________________________________________

 

3. (3%)

Nefndu tvö atriði sem einkenna spendýr en finnast ekki hjá öðrum hryggdýrum:

 

1._____________________________________________________

 

2._____________________________________________________

 

 

4. (3%)

Tilgreinið 3 atriði sem eru öðruvísi í  plöntufrumu en samanborið við dýrsfrumu

 

            1. _____________,    2. ____________,  3 ________________

 

 

 

5. (12%)

Fyllið inn í eyðurnar þær upplýsingar sem á vanta

 

Frumulíffæri:

Hlutverk:

Frumuveggur:

 

 

 

 

Umlykur frumur, stjórnar för efna inn og út.

Kjarni:

 

 

 

Þar myndast netkorn.

 

Netkorn:

 

 

 

 

Vinnsla, pökkun og dreifing prótína og lípíða.

Korn og bólur:

 

 

 

 

Ljóstillífun

 

Hvatberar:

 

 

 

Aðgreina litninga við kjarnaskiptingu.

 

Gen

 

 

 

Hreyfing

 

 

6. (3%)

a)     Skilgreinið hugtakið vistkerfi:

 

 

 

 

b)     Nefnið dæmi um þurrlendisvistkerfi_______________________

 

7. (5%)

Gerið grein fyrir byggingu gerilfrumu (bakteríu). Athugið að hér er gott að nota mynd með skýringartexta.

 

 

 

 

 

 

8. (4%)

Myndin hér að neðan sýnir fæðuvef í hafi. Fæðuvefir eru samsettir úr mörgum fæðukeðjum.

 

Zooplankton=dýrasvif

Phyloplankton=plöntusvif

Seaweed=Þang

Prawn=Rækja

Mussels=Kræklingur

Whelk=Snigill

 

 

a)     Finnið eina fæðukeðju á myndinni og teiknið:

 

 

 

b)     Finnið á myndinni dæmi um:

 

Frumframleiðanda: __________________________________

 

Fyrsta stigs neytanda:________________________________

 

Annars stigs neytanda:________________________________

 

Þriðja stigs neytanda: ________________________________